Tjaldsvæðið Hauganesi
Á Hauganesi er nýtt tjaldsvæði sem er opið yfir sumartímann bæði fyrir tjöld, stærri hýsi og húsbíla. Þar eru rafmagnstenglar, ný salerni og sturtuaðstöðu og stutt á veitingastaðinn Baccalá bar og Fjöruböðin í Sandvíkurfjöru. Tjaldsvæðið er á rólegum og skjólsælum stað og með tímanum verður hann í miðjum trjálundi þar sem búið er að gróðursetja í kringum svæðið.
Verð per sólarhring:
12 ára og eldri: 2.400 kr
16-18 ára, eldri borgarar (67+) og öryrkjar. 1.800 kr
12-15 ára: 900 kr
Börn 11 ára og yngri: frítt!
Rafmagn 1.500 kr sólarhringurinn.
Aðgangur í pottana er ekki innifalinn.
Gistináttagjald, aðgangur að sturtuaðstöðu og þvottavél innifalinn.

