Greiða í pottana
Smelltu hér til að greiða fyrir aðgang að heitu pottunum.
Verð: Fullorðnir: 2.500 kr | Börn 6-12 ára: 1.000 kr. | 5 ára & yngri: Frítt!
Greiða fyrir tjaldsvæði
Tjaldsvæðið á Hauganesi er í göngufæri við ströndina og veitingastaðinn.
Verð á nótt: Fullorðnir (eldri en 18): 2.400 kr. | 16-18 ára, eldri borgarar og öryrkjar 1.800 kr. | Börn 12-15 ára: 900 kr. | 12 ára & yngri: Frítt!
Gistináttagjald innifalið ásamt aðgangi að sturtuaðstöðu og þvottavél.

Njóttu þín á Hauganesi
Hauganes við Eyjafjörð er sannkallaður sælureitur þar sem þú finnur nýlegt tjaldsvæði og heita potta í fjörunni þar sem ljúft er að ylja sér eftir svamlið í sjónum. Ströndin er grunn langt út í víkina þannig að á sólríkum sumardögum er sjórinn þar heitari en víða annarsstaðar við strendur Íslands.
Fjöruböðin hyggja á stórfellda uppbyggingu á Hauganesi á næstu árum en á meðan bjóðum við ykkur að njóta pottanna í fjörunni og tjaldsvæðisins á Hauganesi, frábært athvarf á Norðurlandi.


Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum
Fylgdu okkur og fáðu nýjustu upplýsingar

Veitingastaður
Veitingastaðurinn Baccalá bar við höfnina á Hauganesi býður upp á úrval góðra veitinga, létta rétti, fiskrétti og fleira þar sem hráefnið úr nágrenninu fær að njóta sín. Athugið opnunartíma á ektafiskur.is
Framtíðaráform




